Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Árið 2008, í allri sinni dýrð

13. janúar 2009 klukkan 01:12
2008 - Ár Rannveigar.

Já ég mun ekki muna eftir 2008 sem árinu sem Ísland féll, ég mun muna eftir 2008 sem ári Rannveigar, besta ár sem ég hef upplifað hingað til (fyrir utan auðvitað 1996 sem ég hugsa að muni aldrei vera toppað)
Þó ég sé nú hætt að blogga, hugsa ég að ég taki upp þráðinn aftur og fari að blogga af krafti, nú skulum við byrja á allsherjar annál en ég vara við fyrirfram, hann gæti dregist á langinn. Komin með kaffi?

Árið byrjaði mjög mjög rólega, en kikkaði ærlega inn í kringum Apríl og eftir það var miklu meira en nóg um að vera!

Janúar

  • Árið byrjaði bara rólega og við Haukur búum ennþá í Vífilsgötunni með henni Guðnýju okkar, Finnur svo gott sem fluttur inn líka :) Lífið er bara einsog alltaf, er bara í MK en ákveð að taka 27 einingar, don't ask why.
  • Haukur verður Valsari. Byrjar að æfa fótbolta tvisvar í viku með Val. 
 

Febrúar

  • Guðný mín varð 25 ára, hún ákvað að taka nokkra daga í að eiga afmæli og held ég að þeir hafi orðið... hvað Guðný... 4-5? Magga kom auðvitað suður og við 4 fögnuðum VEL. Það var förðun, greiðsla, kjólar og allur pakkinn tekið á þetta. Út að borða, surprise partí og endað í besta balli sem við höfum nokkurn tíma upplifað, Pallaball á Naza.


Mars

  • Ég varð Rauðka.
  • Brotist inní bílinn minn og stolið skólatösku Margrétar sem komst til skila aftur
  • Brotist inní bílinn minn viku síðar þar sem engu var stolið nema róni hafði komið sér vel fyrir í farþegasætinu og kúrað í pappírum - haha. 
  • Skemmtikvöld Erlu og Rannveigar! Byrjaði á hugmyndinni að fara í ljós, kaffihús og svo bíó. Endaði með að keyra til Þorlákshafnar, Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfoss. Kíktum líka við á Hrauni. Frábært kvöld
  • Hlaupabólan kom í heimsókn! 
  • Familían kom að vestan og var hjá okkur í páskafríinu
  • Hvalaskoðun
  • Árshátíð GJ haldin á hótel Eldhestum hjá Hveragerði, mjög fínt.
    

Apríl

  • PARÍS! Eyddi viku í París með samnemendum mínum í FRA333. Æðisleg vika sem við áttum þar. Lærði mikið og við þurftum að panta allt sjálfar á frönsku og koma okkur á milli staða. Metro kerfið bara snilld. Sá allt sem mig hafði dreymt um að sjá síðan ég var lítil stelpa. Ein besta upplifun lengi. Ég og Tinna mín skemmtum okkur einstaklega vel. Hitti líka Christine mína! Eiffel, Sigurboginn, kaffihús, Louvre, Notre Dame, Sacre caeur, DISNEYLAND.
  • Uppúr lok mánaðar fæ ég stresskast, eitt mesta stresskast sem fyrirfinnst í þessum heimi. Þarf að vera flutt úr íbúðinni 1 maí, ekki með aðra íbúð, berjast við að klára þessar 27 einingar, halda afmæli Hauks og bla bla bla. Allt blessaðist nú, fekk íbúð á innan við 2 vikum áður en ég átti að flytja útúr Vífilsgötunni og er hún bara fín. Búum því núna í Ásvallagötunni, góður staður. Klára önnina með stæl og Haukur heldur fínasta 5 ára afmæli heima hjá Erlu minni sem bjargaði því fyrir mig. Alltaf hægt að treysta á þessar vinkonur manns!! :D
  • Haukur minn orðinn 5 ára gamall takk fyrir !
  • Þann 28 Apríl ákveð ég að taka þátt í forkeppni í MK í ferðamálum. Ég kynnti Namibíu sem frábæran áfangastað fyrir ferðamenn. Ég sigraði þessa keppni og þar af leiðandi átti ég að fara til Eistlands í Október og keppa alþjóðlega í ferðamálum fyrir hönd MK/Íslands.
         

Maí

  • Við Erla skreppum vestur yfir Hvítasunnuhelgina, Erla til að flytja vestur, ég bara í helgarferð. Lentum í veðurteppu á Steingrímsfjarðarheiðinni og snúum við. Hólmavík troðin af fólki sem vildi komast til Ísafjarðar. Eina sem við fáum er gisting í stofunni á gistiheimilinu. Reynum að gera ævintýri úr þessu og kíkjum á svaka pöbb bæjarins. Sitjum þar tvær og flissum og hlæjum J Komumst á leiðarenda daginn eftir.
  • Kaaaalt River Rafting með Rakeli og Lindu!
  • SPÁNN. Fór með Mömmu, Þresti, Stefáni, Margréti, Eiríki og Hauki til Punta Prima (rétt hjá Alicante) á Spáni. Áttum þar sirka 9 daga. Alveg hreint yndislegt frí. Lágum í sólbaði, fórum í Terra Mitica tívolíið, dýragarð, rennibrautagarða. Æðislegt. 
  • Ingan mín og Helgi eignast yndislega litla stelpu, hana Fjólu Dís. 
  • Búin með MK en fór í sumarskóla í Versló og fer einnig í fjarnám þar um haustið, komin í fulla vinnu og útskrifast vonandi um jólin ;) Lærandi allt árið! 
  • Magga mín orðin stúdent! Hún útskrifast úr menntaskólanum á Ísafirði og er einn glæsilegasti stúdent sem ég hef séð :) Ég og Haukur skellum okkur vestur til að fagna með henni. Glæsilegt Magga, til hamingju.
   

    

Júní

  • Ævintýrin byrja. Þjálfa nýja stelpu í einstaklingsdeild hjá okkur á GJ. Álíka ofvirk stelpa og ég sem er frábært. Heitir Aldís. Við fórum fyrst í Snorkel (jájá, búin að fara tvisvar áður en þetta er bara geggjað) þarsem við skemmtum okkur ótrúlega vel. Veðrið var gott og 4 hressir Ameríkanar voru með í för. Hoppuðum MIKIÐ niður af klettunum á svæðinu, brjálað fjör! :)
  • Strax helgina eftir skelltum við okkur í göngu upp að Glym í Hvalfirði. Virkilega virkilega erfitt en mikið svakalega var gaman! Einn fallegasti staður sem ég hef séð á Íslandi. 
  • Bauð mömmu í afmælisgjöf ferð til Grímseyjar þar sem við fórum saman eitt kvöldið og röltum yfir Heimsskautsbaug. Skemmtileg ferð en frekar mikið flug sem tengist þessu :s flug til Akureyrar og þaðan í lítilli rellu á eyjuna.
 


Júlí

  • Átti smá ástarævintýri með Ástrala sem býr í London. Í júlí skellti ég mér í helgarferð til London og eyddi tímanum þar með honum. Ekki bara það heldur hitti ég LIDU! Æskuvinkona mín frá Namibíu, hafði ekki hitt hana í 12 ár en það var einsog ekkert hafði breyst :) Þvílík upplifun. Gerði alla klisjuna í London, siglingu á Thames, London Eye, Buckingham palace, Big Ben og allt þetta :)
  • Ástarævintýrið mitt kemur svo til Rvk helgina eftir. Tek hann á svaka Reykjavík sightseeing haha, svo bara svaka djamm. 
  • Magga mín 24 ára
       

Ágúst

  • Ég ennþá með æði fyrir svifinu. Nú ætlaði ég að prufa alvöru svifdreka en það er víst ekki hægt að taka farþega í það, þannig að maður þarf hreinlega bara að læra það áður en maður skellir sér :) En jæja, next best thing var nú mótordreki sem hún Rakel kom með mér í. Óóóóógeðslega gaman!!!!!! Mótordreki toppar svifflugið any day! Fallhlífastökkið verður enn að bíða
  • Highlights of the North. Okkur í vinnunni var boðið í dagsferð norður. Lentum á Akureyri og keyrðum þaðan í kringum allt Mývatns svæðið. Fengum kynningar á nokkrum hótelum og skoðuðum mikið. Enduðum á Hvalaskoðun frá Húsavík sem var engu líkara. Miklu flottara en hér í Rvk. Sá fullt af hvölum og þeir voru að leika sér allt í kringum bátinn. 
  • Vann alla verslunarmannahelgina. 
  • Jökulganga með Ása bróður og Stefáni bróður. 
  • Hmmm man ekki hvort ég hafði gert eitthvað meira í Ágúst :s
     

September

  • Átti besta afmæli EVER! Þrefalt fagnað þessu afmæli! Ég á afmæli á Miðvikudegi, helgina fyrir afmælið ákveð ég að hafa örlítinn hitting heima, bara fyrir nánustu vinkonur. Vinur minn, sem er guide, vill taka mig í smá surprise á þessum laugardegi. Ég fæ ekki að vita neitt og við keyrum bara af stað. Er þetta þá svokallað gljúfraævintýri. Ég ekki í neinum öryggisböndum eða neitt og við skellum okkur í fallegt gljúfur í Fljótshlíðinni. Hardcore klettaklifur. Christ, ég hélt ég væri að segja mitt síðasta. Nokkrum sinnum sá ég lífið þjóta framhjá mér.... jesús! Magnað klettaklifur þar sem við hentum okkur af og til útí vatnið. Risa foss efst í fjallinu og við vorum að leika okkur við að hoppa í pollana sem myndast á milli fossa. Í lokin skellum við okkur síðan á bossann og rennum NIÐUR síðasta fossinn... á bossanum! Hahaha maaaagnað!
  • Kem heim og segi stelpunum að koma og byrja að hella í okkur. Þær koma, Magga, Erla, Guðný og Inga Sigga. Meðan ég skelli mér í sturtu skreyta þær alla íbúðina, elda dýrindis mat og baka súkkulaði köku!! Krúttin. Svo koma nokkrir fleiri og við hellum í okkur. Skellum okkur niðrí bæ þar sem var skálað í kampavín og allt æðislegt. 
  • Svo kemur miðvikudagur, minn afmælisdagur og ég fer í flottan kvöldmat heim til mömmu í faðm familíunnar. 
  • Þriðja í afmæli held ég í London. Skelli mér enn einu sinni erlendis og hef núna 6 daga í London! Ástarævintýrið svakalega enn í gangi. Æðislegir 6 dagar í London þar sem ég fagnaði með öllum mínum vinum þar. Vúhú
  • Fór á VestNorden, ferðakaupstefnu haldin á Íslandi þetta árið. Sat þar að tala við ferðaskrifstofur erlendis og reyna að auglýsa okkur enn betur. Mjög skemmtileg reynsla. 
  • Sumarskólinn búinn, tók hann með trompi og fjarnámið á haustönn tekið við. Enn í fullri vinnu hjá GJ og nokkuð sátt enn. 
  • Guðný mín og Finnur eignast yndislegu, pínulitlu Margréti Heklu! 
  • Inga mín 24 ára
   

Október - ferðasagan

  • Svakalega Eistlandsförin mín heltók allan Október fannst mér J Notaði fyrri helminginn af mánuðinum í að stressa mig á þessari keppni. Svo er mál með vexti að nemendur MK hafa staðið sig svo vel, Gull verðlaun síðustu 4 ár í röð!!! Það var ágætis pressa á manni. Stress stress, taldi niður dagana og þann 14 Október var lagt í hann. Flaug frá Keflavík - Köben. Frá Köben - Tallinn. Frá Tallinn þurftum við svo að taka rútu niður að höfn og þaðan ferju á eyjuna Saaremaa þar sem við héldum áfram í klukkutíma enn, til að komast á áfangastað: bærinn Kurressaare á eyjunni Saaremaa, í Eistlandi J ferðaðist með kennurum mínum tveimur, Ásdísi og Helene.
Verð eiginlega að segja ykkur frá opnunarhátíðinni. Svakalega formleg. Þetta eru s.s. 300 skólar frá yfir 40 löndum í kringum Evrópu. Kennarar, dómarar og fleiri sátu í salnum og biðu. Nokkrar ræður haldnar og svona fínheit. Við nemendurnir allir (guuuuð má vita hversu margir voru) biðum fyrir aftan eitthvað risa tjald fyrir ofan salinn. Áttum við að finna okkar fána og standa fyrir aftan hann. Sem og ég geri. Svo allt í einu heyri ég að löndin eru nefnd í stafrófsröð og krakkarnir sem halda á fánunum labba niður stigann, með nemendurnar á eftir sér. Þetta heldur áfram og kemur svo "ICELAND", ég rölti bara voða ánægð með mig, alein á eftir mínum fána. Fæ ég einstaka athygli útaf þessu, þar sem ég var eina manneskjan sem var ein að keppa fyrir hönd landsins. Ítalía sendi t.d. 170 nemendur og öll löndin voru með 20 nemendur eða fleiri. Ég skemmti mér vel að rölta þarna ein, voða stolt (örfáum dögum eftir fall Íslands) á eftir mínum fána, vinkandi fólkinu. Alveg sérstök reynsla þetta. 
Verkefnin voru kynnt. Byrjuðum á einstaklingsprófi (almennt um ferðamál) svo var dregið í lið en allt voru þriggja manna lið. Ég var heppin og lenti í liði með stelpu frá Hollandi, Merel, og stelpu frá Eistlandi, Sirli (og nei hún vissi jafn mikið og við um eyjuna, hafði aldrei komið þangað) Verkefnið átti að vera um bætta ferðaþjónustu á eyjunni. 
Fengum við svo 5 klst fyrir hádegi á föstudeginum til að gera ritgerð um efni okkar. Skiluðum því inn kl 13 til að fara í hádegismat. Strax eftir matinn hlaupa aftur uppí skóla þar sem við höfðum 3 klst til að gera kynningu á verkefni okkar. Skiluðum því inn og var það mikill mikill léttir. Nú var bara að bíða eftir niðurstöðum. 
Djamm um kvöldið, það var skemmtilegt. Á Laugardeginum var svo farið heila dagsferð í kringum ALLA eyjuna. Það var mjög skemmtilegt að sitja í rútu svona í þynnkunni ;) Nei þetta var frábær reynsla, margt að sjá og óóótrúlega falleg eyja! Vá. 
Kl 6 var loksins komið að þessu, gala dinner með verðlaunaafhendingu. Allir sitja saman í salnum, en beint fyrir framan okkur er risa gólf pláss, svo svið, fyrir ofan sviðið risa flatskjár. Skemmtiatriðin og ræðurnar ætluðu engan endi að taka. Svo var komið að því. Verðlaunin! Á sviðinu var verðlaunapallur. 
Kemur svo á sviðið:

TOURISM COMPETITION
Svo kom auðvitað bronze fyrst.. ekki lið númer 9...
Svo kom silfrið ... úff liðið sem ég var svo hrædd við.... sviti sviti sviti
"GOLD MEDAL"
Team 9
Rannveig Snorradóttir - Iceland
Sirli Sikov - Estonia
Merel van der Zelm - The Netherlands

Með mynd af fána fyrir framan nafnið sitt.

Oh my god! Þetta var ótrúlegt. Knús frá kennurunum og svo labba upp að sviðinu. Beint upp á 1 pall. Gullverðlaun. Vá hvað þetta var magnað! Sunnudaginn var svo heimferð nema hvað að við áttum alveg 5 tíma til að eyða í Tallinn! Fengum þar frábæra leiðsögn um alla gömlu borgina frá Sirli vinkonu. Svo var það Köben, hitti Guggu systir og svo komin heim eftir 21 tíma ferðalag J

Jáhá, þetta gat hún. Kem svo í fréttablaðinu, fullt af heimasíðum með greinar af mér, einnig held ég að það hafi komið greinar um mig í einhverjum kópavogsblöðum...

Fekk skeyti frá ferðamálastjóra Íslands, það fannst mér kúl.

  • Erla mín 24 ára, heldur magnað halloween afmælis partí.
         


Nóvember

  • Læra læra bara.
  • Dimmition þar sem ég klæddist sem Panda björn. Tókst að vera full í 20 tíma og skemmti mér KONUNGLEGA.
  • Erla dimmiterar, er nunna J
  • Æfingar fyrir útskrift... kópamessa... la la
  • Vinna - skóli
 

Desember

  • Rosalegur lærdómur í byrjun mánaðar
  • Okkur Erlu tókst það!
  • Útskrift, ég sem stúdent frá MK, Erla mín sem hárgreiðslukona frá Tækniskólanum.
  • Góð og róleg jól 
  • Góð og róleg áramót

 

 

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt það gamla og góða!

Jáhá, gott ár myndi ég sko segja. 5 x utanlandsferðir, ævintýrin á sínum stað, gullverðlaun, útskrift, tvær litlar snúllustelpur fæðast...

2008 er sko ÁRIÐ!! :)

Sjáumst hress og kát á nýju ári, ári bloggsins gott fólk.

Knús

 

Snúlla Guðnýjar og Finnsdóttir er fædd! (Aka Erla Margrét Rannveigardóttir)

23. september 2008 klukkan 18:48
Þann 21 September '08 kom þetta yndislega fallega barn í heiminn!!

Aðeins 10 merkur og 50 cm




Sjáiði hvað hún er FALLEG???????
Fáum ekki að sjá hana alveg strax. En báðum heilsast mjög vel, Guðný er að jafna sig og slappa af, áður en þau fara heim. Við fáum vonandi að sjá skvísurnar á morgun eða hinn í síðasta lagi!!
Til hamingju elsku Guðný og Finnur! Hún er yndisleg

Knúúúúúús
Rannveig

Sumarið búið!!

18. september 2008 klukkan 23:19
Jú jú... sumarið komið einsog ég sagði í síðustu færslu... og heyrðu, ég held að það sé bara farið líka!!! Guð minn góður hvað tíminn hefur liðið hryllilega hratt og ég gleymdi víst að blogga :) Ekki það að það var ekki nóg að segja frá... bara einfaldlega leti+tímaleysi :)
Þetta var frábært sumar alveg hreint. Ég get eiginlega ekki metið það hvort það hafi endilega toppað síðasta sumar en þetta sumar var allavega ekki síðri!

Svona til að REYNA að gera langar sögur stuttar... þá eru hér hápunktar sumarsins

Sumarið sjálft byrjaði bara helvíti vel, ég komst yfir þetta erfiða tímabil með flutninga, afmælishald, próftörn og vinnu allt í einu. Þá hófst sumarið þegar ég fór í River Rafting í Maí með Rakeli og Lindu, virkilega gaman en KALT.
Þetta var eiginlega á mörkunum að vera of snemma sumars til að skella sér í vatnið.


Svo var það snorkelið með Aldísi, gangan að Glym var auðvitað alveg mögnuð. Spánn í Maí sem var meiriháttar með familíunni.

Svo er það sumarskólinn. Ég skráði mig í tvö fög því ég ætlaði mér að hætta í dagskóla, fara í fulla vinnu og útskrifast núna um jólin með því að taka smá sumarskóla og svo rest í fjarnámi. Það hefur gengið alveg ljómandi, rústaði ÍSL503 og ÍSL613 í sumar í versló. Nú er ég í fjórum fögum í versló í fjarnámi og skráð í útskrift úr MK. Er ennþá hjá GJ og nokkuð sátt þar ennþá.

Ævintýrin í sumar já...
Við Rakel gerðum svolítið ÓTRÚLEGT í sumar. Ég get varla hugsað um annað, alveg síðan við fórum, og langar virkilega að gera þetta að áhugamáli og fara að læra þetta. Við erum að tala um mótórdreka! MÖGNUÐ upplifun og fátt sem toppar þetta, það er alveg á hreinu!!!!


Bíddu nú við... Ævintýri án hjálms????

Nei hélt ekki! Ævintýri er ekki ævintýri án hjálms ;)

Hvað gerði maður meira? Ég man þetta ekkert! Jú í Júlí skellti ég mér til London með 10 daga fyrirvara! Akvað bara að skella mér allt í einu og bókaði flug. Fór samt bara eina helgi, flaug út á föstudegi og til baka á sunnudegi! Frekar lítill tími en þetta var alveg frábært!! :)





Svo var það þarna einhverntíma sem við fórum nokkrar úr vinnunni í dagsferð norður, kynningarferð fyrir okkur. Fengum að heimsækja nokkur hótel og svona. Ferðin heitir "Highlights of the North" og er virkilega frábær!!
Fórum að skoða Goðafoss, kíktum í kringum Mývatn á jarðböðin og fleira og svo enduðum við á þriggja tíma hvalaskoðun frá Húsavík sem er alveg geggjað!





Svo var afmælið mitt! Það var eitt það magnaðasta sem ég hef u
p plifað! Það er alveg á hreinu! Ég fekk endalaus Surprise þann dag! Þetta átti nú að vera voða lítið og rólegt, enda bara 24 ára, ekkert merkilegt! Vaknaði kl 11 um morguninn til að fara í mitt fyrsta surprise. Vinur minn, Egill, sem er guide, bauð mér í surprise ævintýri yfir daginn. Fórum við í Fljótshlíð og hann henti mér í svona æðislega sexy galla:



Hjálmurinn auðvitað á sínum stað!

Svo var skellt sér uppí fjallið þarna fyrir aftan mig, í svokallað "gljúfra ævintýri" þá er það bara þannig að þetta er hardcore klettaklifur. Klifruðum upp og niður og útum allt þarna í þessu æðislega fallega gljúfri. Svo er þarna foss, sem myndar alltaf svona laug fyrir neðan, aðeins meiri foss, svo laug, svo smá foss, laug og svo framvegis. Þá er bara að vega og meta hvort þetta sé ekki alveg örugglega hættulaust og hoppa í sumar laugarnar. Sem og við gerðum. Virkilegt fjör! Enduðum á því að renna okkur bókstaflega niður einn fossinn. Hann fór auðvitað fyrst til að athuga hvort það væri ekki ok ;) Þá var það víst svona magnað, þannig að ég hlammaði mér á bossann, þarna efst í fossinum og lét mig svo gossa niður fossinn!!! Alveg MAGNAÐ!! Því miður, einsog segir sig sjálft, engar myndir hægt að taka þar.


Eftir afmælið kom ég hingað heim þar sem ég var búin að bjóða örfáum af mínum bestu vinkonum í létt djamm hér heima. Kom heim og lét stelpurnar vita. Þær skelltu sér yfir. Ég fer í bað og þegar ég er komin úr baðinu eru þær búnar að skreyta alla íbúðina mína!!!! Algjörar dúllur. Ekki bara það, heldur búnar að elda dýýýrindis kjúklingarétt! Eftir matinn komu þær svo inní stofu til mín með æðislega súkkulaði köku og sungu fyrir mig :) Kerti 2 og 4 voru á kökunni! Þetta var ÆÐISLEGT svo komu nokkur fleiri í afmælið og enduðum við á að vera öll á rassgatinu, syngjandi hástöfum spjallandi og skemmta okkur konunglega! Loksins kvörtuðu nágrannarnir rétt fyrir kl 3!! Þá drulluðum við okkur niðrí bæ þar sem við fórum á q bar með ása bróður. Þar var gripin kampavíns flaska og glös fyrir alla og skálað í kampavíni. Dansað uppí sófa, skólausar þar til okkur var hent út!!! ÆÐISLEGT afmæli!!!!!!!! :)





En afmælið var ekki búið þarna, nei nei, þetta var á laugardeginum 30 ágúst. Á miðvikudeginum eftir var 3 sept sem er minn virkilegi ammælisdagur. Matur heima hjá mömmu með allri familíunni! Mjög kósí og gaman. Svo skellti ég mér aftur til London á laugardeginum 6 sept og fagnaði afmælinu mínu þar, með hótelherbergi og fór með vinum mínum út að borða og djamma á laugardeginum í London. Ég nenni eiginlega ekki að segja mikið frá þessari London ferð... var í 5 daga og það var alveg meiriháttar. Hitti Lidu vinkonu mína frá Namibíu sem ég hef ekki séð í 12 ár! Það var einsog ekkert hafði breyst. Hitti líka mína yndislegu Christinu!! Þetta var bara meiriháttar. Upplifði líka svokallaða "kirkju" sem er allt annað en orðið bendir til... segi kannski frá því seinna. Annars er svosem hægt að sjá allt á facebook fyrir þá sem eru þar og eru vinir mínir ;)




Komið gott held ég í bili... nú getiði sko verið stollt af mér, brjálað blogg, hundleiðinlegt I know, en nú getiði hætt að tuða í mér í bili :)

Knús
Rannveig

Sumarið komið!!

21. júní 2008 klukkan 10:50
Hæ hó!
Veit ekki alveg hvað skal segja. Er hætt að nenna þessu blogg stússi.
Nóg að gera. Sumarið komið í allri sinni dýrð og þá er ég orðin ný manneskja. Ég tými varla að sofa það er svo gott að vera til :)

Er byrjuð að gera helling. Fyrst skal nefna River Rafting sem ég fór í rétt áður en ég fór til spánar. Kíkti með Rakeli og Lindu. Það var þrususkemmtilegt.
Svo var auðvitað spánar ferðin! Við áttum 9 heila daga úti. Það var alveg yndislegt. Draumi líkast. Þið hefðuð átt að sjá Hauk minn, það sem honum fannst yndislegt! Við fórum i tvo rennibrautagarða, forum í dýragarð, í stóra tívolíið og þess fyrir utan vorum við bara að slap
pa af og leika okkur á ströndinni! Alveg draumi líkast! :) Við vorum í punta prima sem er rétt hjá Alicante. Vorum í æðislegu húsi með einhverjum 5 rennibrautum í garðinum :)
Nokkrar myndir til að sýna hvað var yndislegt:








Þetta var algjörlega bara best í heimi!

Svo er vinnan bara á miljón... miklu meira en nóg að gera þar auðvitað. Ég sé um 4 bæklingaferðir og það er vel bókað í þær allar... ótrúlega gaman að vinna við þetta. Sé reyndar líka um svona "vi
p gesti" sem koma til landsins.

Ævintýrin byrjuð.. heldur betur!
Ég og Aldís fórum í snorkeling síðasta laugardag. 4 ameríkanar voru með, ótrúlega gaman af þeim. Við fengum æðislegt veður. Þetta er reyndar þriðja ski
ptið sem ég fer snorkeling í Silfru, en alltaf er hún jafn falleg!




Við stukkum þarna aftur og aftur og aftur... það var ekkert SMÁ mikið fjör :)

Svo ákváðum við Aldís að labba u
ppað fossinum Glym í Hvalfirði. Okkur hefur alltaf langað svo mikið að sjá hann! Tókum okkur til eftir vinnu á miðvikudag og keyrðum í Hvalfjörðinn. Þetta var alsherjar ganga og ekkert smá erfið. Það er sko ekki fyrir alla að labba þangað! Við þurftum að klíf upp fjallið, niður það aftur, inn dalinn, inn dalinn hinum megin við ánna... og ég veit ekki hvað og hvað! En þetta var þrususkemmtilegt. Tók okkur marga marga tíma en það er bara svo fallegt þar :)








Svo á fimmtudagskvöldið fórum við mútta í kvöldferð til Grímseyjar. Við vildum rölta yfir heimsskautsbaug og sjá þessa litlu eyju þarna leeeengst fyrir norðan :) Það var ótrulega gaman. Hér erum við mamma á heimsskautsbaug :)



Annars held ég að þetta sé komið gott í bili. Það eru ekki fleiri ævintýri plönuð þessa helgina, en aldrei að vita hvað gerist :)

Knús á línuna
Rannveig

Hvítasunnan á Ísó.. á mynd!

25. maí 2008 klukkan 20:46
Hér er svo helgin sálf, hvítasunnu helgin á ísafirði

HAHAHAHAHAHA

Life is sweet

14. maí 2008 klukkan 00:19
Urrggg. Allt datt út. var komin með heljarinnar blogg.

Jæja þá. Taka 2.
Lífið er orðið gott á ný.. blah blah blah eitthvað meira um það.
Ég sigraðist á öllum þessum hindrunum í lífinu sem ég fekk þarna á aðeins 3 vikum. Við Haukur heldur betur hamingjusöm í okkur æðislegu íbúð og prófin búin.

Meirasegja var haldið uppá afmæli Hauks. Það var haldið heima hjá Erlu minni því hún er algjör life saver!! Margir hjálpuðu til og var þetta fínasta fínasta afmælisveisla.
Litli prinsinn orðinn 5 ára.. úff!!



Prófin búin.. við Erla keyrðum vestur á ísó á föstudaginn síðasta. Erla flutt.. helvítis %#%(%# til að vera í allt sumar!! Ég for nú bara yfir helgina.
Lentum í svakalegu á leiðinni.
Ætla eiginlega bara að láta vídjóin tala sínu máli... enda segja þau allt sem segja þarf.... mega fyndið

Nú er ég bara byrjuð að vinna.. lífið orðið bara gott. Ævintýrin fara öll að gerast! Ég lofa sjálfri mér að þetta verður skemmtilegra sumar en fyrrasumar (það verður erfitt, en ég get reynt)

Fór í dag í grill til Ingu minnar. Þar voru samankomnar Ég, Inga, Rakel, Unnur, Hulda, Linda, Haukur og Gugga litla. Mjög gaman að hitta allar þessar stelpuskottur aftur. Líður alltaf of langt á milli þess sem ég hitti þær.
Inga mín er sett í dag !!! Hún er komin með svakalega bumbu en mikið afskaplega lýtur daman vel út!! Þetta er svona eitt af þeim stelpum sem ætti bara alltaf að vera ólétt. Ekkert smá sæt. Svona ekta "þ"  ;) Ég hlakka svooo til að sjá litlu Rannveigu sem fæðist vonandi sem fyrst :)



Svo á hún Gugga systir mín afmæli í dag! Hún er 31 árs í dag!! Innilega til hamingju með það elsku Gugga mín!!



Ég fekk auðvitað litun a la Erla áður en við skiljum leiðir fyrir sumarið. Fekk frábæran dökkan lit í hárið! ég er bara úberbeib..



Það er alveg örugglega eitthvað helling meira að frétta en ég bara nenni þessu ekki lengur!!!

Knús
Rannveig

Keppni í ferðakynningum

28. apríl 2008 klukkan 17:55
 

Í hádeginu í dag, mánudaginn 28. apríl, fór fram undankeppni í ferðakynningum í stofu N-20.

Fimm nemendur skráðu sig til leiks og stóðu sig allar með sóma. Kynningarnar fóru fram á ensku og þóttu þær skemmtilegar, fjölbreytilegar og áhugaverðar. Keppendurnir voru Birgitta Ósk Kristínardóttir sem kynnti Íslendingastaðinn Lanzarote, Kristín Ýr Sigurðardóttir kynnti Ástralíu, Rannveig Snorradóttir fjallaði um ferðamöguleika Namibíu, Steinunn Steinarsdóttir sagði frá Póllandi og Þórhildur Erla Pálsdóttir kynnti Ísland sem áhugaverðan áningastað.

Í dómnefnd sátu Ásdís Ó. Vatnsdal fulltrúi MK í dómnefnd AEHT, Sólveig Nikulásdóttir, fagstjóri Leiðsöguskólans og Tinna Hrund Gunnarsdóttir, sigurvegari MK undankeppninnar 2007 og AEHT keppninnar á Ítalíu 2007.

Samdóma álit allra var að Rannveig Snorradóttir bæri sigur úr býtum og mun hún þar með verða næsti fulltrúi skólans í AEHT-keppninni sem fram fer í Eistlandi í október næstkomandi.


Sigurvegarinn Rannveig



Oooohhhh ég á svo Spennandi Líf !!!!

Knús
Rannveig

Stressið minkar....

19. apríl 2008 klukkan 12:58
ÉG ER KOMIN MEÐ ÍÍÍBÚÚÚÚÚÐ!!!

ég tala af alvöru
Ég og Haukur erum komin með ÍBÚÐ!!!!!!!!!!!

Þetta minkaði stressið um 50% hjartslátturinn orðinn eðlilegur.. eða nokkuð eðlilegur allavega

VÍÍÍ

sko.. svo er mál með vexti að ég hef verið að skoða íbúðir síðan í febrúar sirka. Allar íbúðir sem ég hef skoðað hef ég hugsað á meðan "já ok.. ok... það er svosem hægt að sætta sig við þetta.." "þetta er ekki á góðum stað... en ég er nú á bíl" "jæja, ég og haukur getum alveg verið í stúdíó íbúð er það ekki?"


Nei nei, íbúðin sem ég fekk.. þetta var það sem var í gangi í hausnum á mér meðan ég skoðaði "vááá... váááá... váááááááá. æðislegt bað!!! vá en æðislegt herbergi!!! vááá, glænýjar keramik hellur!! vá... glænýtt eldhús og eldhúsborðið fylgir!!! vá en það þvottahús með fullt af snúruplássi!! vá en æðislegt herbergi fyrir Haukaling sem hann fær ÚTAF FYRIR SIG !!!!"

Jámm, við erum að tala um DRAUMA íbúðina fyrir mig og Haukalinginn minn... og viti menn.. ég skrifaði eitt sleikjubréf að tjá mig um góð meðmæli og reglusemina i mér... OG ÉG FEKK ÍBÚÐINA !!!!!!!!!!!!!! Íbúðin er... daddadadammm... í ásvallagötu!!! Yndisleg gata á frábærum stað!! Ég get svo svarið það, ég er beint á móti Erlu minni og í göngufæri til múttu.. gæti þetta verið betra? NEI

Gleði gleði....
Var að læra til 2 í nótt... og lærdómurinn heldur áfram. Gott að fá pabba heim frá Afghan.. hann er að taka börnin í húsdýragarðinn og ég hef allan daginn til að læra í friði... já stressið minkaði heldur betur við að þurfa ekki að hringja og hringja og hringja og hanga á leigulistanum að redda íbúð. Hvað er þetta.. ég get meirasegja farið að einblína á lærdóm??? En sá LÚXUS ;)

Stórt og hamingjusamt KNÚS

Rannveig

Lets count down.. shall we

17. apríl 2008 klukkan 18:03
Ég hef

-15 mínútur til að skrifa þetta blogg
-Kvöldið í kvöld til að klára fyrirlestur í íslensku
-Kvöldið í kvöld til að skoða tvær íbúðir
-Kvöldið í kvöld til að læra fyrir kaflapróf í frönsku
-2 daga til að undirbúa afmæli Hauks, bakstur, bjóða og allt sem fylgir því
-3 daga til að semja munnlegt vídjóverkefni á frönsku og taka það upp
-4 daga til að læra fyrir málsháttapróf í spænsku
-5 daga til að undirbúa einn mikilvægasta fyrirlestur sem ég mun nokkurn tíma halda
-11 daga til að klára allt sem fylgir símat áföngum (ég er í 6 símat áföngum) ferilmöppur, fyrirlestrar, próf og margt fleira á hverjum einasta degi
-13 daga til að pakka öllu draslinu mínu, þrífa íbúðina og flytja útúr henni
-Ekki 13 daga til að FINNA MÉR ÍBÚÐ
-13 daga til að láta gera við bílinn og koma honum í skoðun
-13 daga til að undirbúa mig til að biðja um launahækkun og undirbúa mig fyrir að setjast aftur í vinnustólinn

Allt þetta er að gerast akkurat núna.... Allt í einni runu.

Ef að ég kemst í gegnum þetta á lífi, án taugaáfalls, án hjartaáfalls og án magasárs... þá er ég hetja. Þá mun ég klífa Everest og öskra af öllum lífs og sálar kröftum yfir heiminn.

Hef ekki tíma fyrir þetta
Rannveig

París

10. apríl 2008 klukkan 21:35


Víí
Vííí
víííi

Prófíll

  • Nafn: Rannveig Snorradóttir
  • Netfang: rannveig7@hotmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Ferðaskrifstofu / Nemi
  • Hjúskaparstaða: Einstæð
  • Um mig: Ekkert skemmtilegra en að ferðast og fara á vit ævintýranna :)